Saga skólans

Saga skólans

Jazzballettskóli Báru var formlega stofnaður árið 1967 í Suðurveri við Kringlumýrarbraut í Reykjavík og hefur starfað óslitið síðan. Stofnandi skólans og fyrsti kennari var Bára Magnúsdóttir. Bára lærði í Ballettskóla Þjóðleikhússins sem barn en hélt utan til Englands á unglingsárum til frekara dansnáms við sviðslistaskólann ArtsEd – Arts Educational School í London. Í Englandi kynntist hún nýjum straumum og stefnum í listdansi þar sem hún heillaðist af jazzballettinum og Broadway söngleikjum á West End. Árið 1965 snéri Bára heim full af eldmóði. Hún reyndi fyrir sér sem dansari eftir heimkomuna og tók þátt í ýmsum sýningum. Samhliða sýningarstörfum stóð hún fyrir námskeiðum í jazzballett fyrir börn og unglinga. Námskeiðin spurðust út og nutu fljótt mikilla vinsælda. Greinilegt var að íslenska æsku þyrsti í nýjungar á sviði tómstunda og lista. Námskeiðahaldið varð sá hvati sem lá að baki stofnunar skólans.

Mikið kynningarstarf fór í hönd og skólinn stóð fyrir fjölda nemendasýninga. Stofnaður var Dansflokkur JSB sem sýndi víðs vegar um borgina og fór auk þess í sýningarferðalög um landið.

Með tilvist skólans varð til nýtt athvarf fyrir börn og unglinga til tómstunda og listsköpunar. Árið 1987 á tuttugusta starfsári skólans, var stofnaður atvinnudansflokkurinn Íslenski jazzballettflokkurinn. Starfaði hann í tvö ár og setti upp fimm sýningar eftir íslenska og erlenda danshöfunda. Sótt var um fjárveitingu fyrir flokkinn, en hún fékkst ekki og því var ekki unnt að halda starfseminni áfram. Tveir af 14 dönsurum flokksins störfuðu áfram við vinnu í erlendum dansflokkum og nokkrir tóku til starfa við kennslu. Með árunum hafa orðið til góðir dansarar hérlendis og er óhætt að fullyrða að íslensk listdanssköpun sé runnin undan rifjum okkar eigin menningar. Áhrifin má sjá víða í félagsstarfi grunn- og framhaldsskólanema, þar sem frjáls danssköpun skipar stóran sess, mikill sjónarsviptir væri af ef hennar nyti ekki við.