Danslistarskóli JSB
Við bjóðum upp á vandað listdansnám fyrir börn og unglinga í takt við kröfur samtímans.
Listdansbraut
Dansnám á jazz- og nútímadanslínu, metið til stúdentsprófs á listdansbraut MH
MeiraJazzballettnám
Vinsælt og fjölbreytt dansnám sem hefur þróast á hátt í 60 ára starfsferli skólans
MeiraForskóli
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn á aldrinum 3-5 ára
MeiraJazzballett fyrir fatlaða
Dansnám fyrir börn og ungmenni með fötlun, þar sem gleðin er í fyrirrúmi
MeiraLíkamsrækt JSB
Smelltu hér til að fara á vefsíðu Líkamsræktar JSB
jsb.isDanslistarskóli JSB · síðan 1967
Hvað gerum við?
Við bjóðum vandað listdansnám fyrir börn og unglinga í takt við kröfur samtímans. Starfshættir skólans mótast af síbreytilegum heimi listdansins og metnaður og alúð eru lögð í skólastarfið.
Við mætum þörfum nemenda af umburðarlyndi, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi og ábyrgð - og bjóðum listdansnám sniðið að ólíkum þörfum hvers og eins.
Dansinn gefur
- Listrænan þroska
- Aukna líkamsvitund
- Félagsfærni
- Velferð og hreysti
- Skapandi hugsun
- Sjálfstæði og sjálfstraust
Af hverju ættir þú að skrá þig í dansnám í JSB?
Viðurkennt faglegt nám
Skipulagt nám með skýrum markmiðum, frá fyrstu sporum upp á framhaldsstig.
Faglegir kennarar
Menntaðir og reyndir danskennarar sem leggja metnað í hvern nemanda.
Sterkt samfélag og félagslíf
Vinátta, sýningar og ferðir sem nemendur muna alla ævi.
Fjölbreytt nám
Jazzballett, klassískur ballett, nútímadans og fleira – fyrir 3 til 20 ára.
Við erum ávallt til staðar fyrir þig
Hafðu samband →Teymið okkar
Teymið okkar samanstendur af öflugum danskennurum og starfsfólki.
Þórdís Schram
Helga Hlín Stefánsdóttir
Rebekka Sól Þórarinsdóttir
Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir
Rósa Rún Aðalsteinsdóttir
Gertruda Paceviciute
Nína Margrét Halldórsdóttir
Jóakim Kvaran
Rebecca Hidalgo
Sunneva Líf Albertsdóttir
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Sara Dís Gunnarsdóttir
Sara Atladóttir
Lilja Helgadóttir
Anna Kolbrún Ísaksdóttir
Kristína Rannveig Jóhannsdóttir
Úlfhildur Melkorka
Weronika María Zyrek
Þórunn Birna Benediktsdóttir
Embla María Jóhannesdóttir
Elín Víðisdóttir
Agnes Lóa Heimisdóttir
Kolbrún Elvi Harðardóttir
Bára Magnúsdóttir
Fréttir af okkur
Fylgstu með því sem er að gerast hjá okkur!
Hrekkjavökuball 10-12 ára nemenda
Frábær þátttaka var á hrekkjavökuballi 10-12 ára nemenda.
Hrekkjavökuball 10-12 ára nemenda
Frábær þátttaka var á hrekkjavökuballi 10-12 ára nemenda.
Dansaðu með okkur!
Hvað segja fyrrum nemendur?
“
Skólinn veitir gott aðhald og undirbýr nemendur vel tæknilega og ekki síður þegar kemur að skapandi vinnu, sem er sérstaklega mikilvægt þegar upprennandi danshöfundar eru að prófa sig áfram.
Inga Maren
atvinnudansari
“
Námið undirbjó mig mjög vel bæði tæknilega og listrænt fyrir frekara nám í samtímadansi. Ég kom út úr skólanum með virkilega góða floorwork tækni og sterkan listrænan karakter sem hjálpaði mér að takast á við bæði inntökupróf og svo námið sjálft í LHÍ.
Amanda Líf
Listdansbraut 2018
“
Listdansbrautin er besta ákvörðun sem ég hef tekið. Námið er ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt, kennararnir eru yndislegir og maður kynnist svo mikið af skemmtilegu fólki.
Linda Rún
Listdansbraut 2020

