Forskóli fyrir 2-5 ára
Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn á aldrinum 2-5 ára.
Dansgleði og hreyfifærni nemenda er virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 1x í viku í 45 mínútur í senn.

Kennslufyrirkomulag
Skólaárinu er skipt í haustönn og vorönn. Kennsla fer fram síðdegis eða um helgar.
Niðurröðun í hópa
Nemendum er skipt í hópa eftir aldri.
Jazzballettnám er fyrir alla
Danslistarskóli JSB sérhæfir sig í jazzballett. Jazzballettnám er vinsælt og fjölbreytt dansnám sem hefur þróast á yfir 50 ára starfsferli skólans. Jazzballettnám er tómstundamiðað og við allra hæfi.
Nám í forskólanum er góður undirbúningur fyrir jazzballettnám.
Dansþjálfunin
Eftirfarandi þættir liggja til grundvallar dansþjálfuninni:
- Samhæfing líkamshreyfinga
- Dansspuni og leikræn tjáning
- Tónskynjun og túlkun hreyfinga við tónlist
- Dansgleði og sjálfsöryggi
Markmið kennslu og hæfniviðmið
Í jazzballettnámi er lögð áhersla á dansgleði. Nemendur eru hvattir til dáða og örvaðir til framfara. Árangursmarkmið eru einstaklingsbundin, miðuð við aldur og þroska nemandans.
Sýningar og viðburðir
Hluti af skipulagi námsins er uppsetning danssýninga. Í lok hverrar annar eru haldar formlegar eða óformlegar sýningar þar sem nemendur fá þjálfun í miðlun og sviðsframkomu.
Í lok haustannar bjóða nemendur fjölskyldu og vinum á “opið hús” þar sem gestir fá innsýn í dansnámið og verkefni nemenda í hefðbundnum kennslustundum.
Allir nemendur skólans taka þátt í viðamikilli nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í gegnum undirbúningsvinnu sýningar fá nemendur ómetanlega þjálfun í sviðsframkomu, tjáningu, samstarfi og félagslegri færni svo fátt eitt sé nefnt.