Jazzballett fyrir fatlaða

Jazzballett fyrir fatlaða

Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn og fullorðna með sérþarfir. 

Dansgleði og hreyfifærni nemenda er virkjuð í gegnum dans og leiki.

Kennt er 1x í viku í 45 mínútur í senn. 

Jazzballettnám er fyrir alla

Danslistarskóli JSB sérhæfir sig í jazzballett. Jazzballettnám er vinsælt og fjölbreytt dansnám sem hefur þróast á yfir 50 ára starfsferli skólans. Jazzballettnám er tómstundamiðað og við allra hæfi. 

Markmið kennslu

Í jazzballettnámi er lögð áhersla á dansgleði. Nemendur eru hvattir til dáða og örvaðir til framfara. Árangursmarkmið eru einstaklingsbundin, miðuð við þroska nemandans. 

Sýningar og viðburðir

Hluti af skipulagi námsins er uppsetning danssýninga. Í lok hverrar annar eru haldar formlegar eða óformlegar sýningar þar sem nemendur fá þjálfun í miðlun og sviðsframkomu. 

Í lok haustannar bjóða nemendur fjölskyldu og vinum á “opið hús” þar sem gestir fá innsýn í dansnámið og verkefni nemenda í hefðbundnum kennslustundum. 

Allir nemendur skólans taka þátt í viðamikilli nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í gegnum undirbúningsvinnu sýningar fá nemendur ómetanlega þjálfun í sviðsframkomu, tjáningu, samstarfi og félagslegri færni svo fátt eitt sé nefnt.