Category: Uncategorized

Nemendasýning 2024

💫 Í FYRSTU VAR EKKERT 💫

Nemendur og kennarar Danslistarskóla JSB setja á svið frumsamda sýningu byggða á sögum og kenningum um upphaf alls lífs.“Í FYRSTU VAR EKKERT” fer með áhorfandann í ferðalag alla leið aftur til upphafsins, leiðir okkur í gegnum forna tíma og áfram til dagsins í dag. Að lokum veltum við því fyrir okkur hvað framtíðin mun bera í skauti sér…

**Nemendasýningar JSB 2024 fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 22. og 23. apríl.Miðasala hefst þriðjudaginn 9. apríl kl. 12:00 á tix.is og í miðasölu Borgarleikhússins.

Verð: 3600 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur! 🤍

Páskafrí

JSB ÓSKAR ÖLLUM GLEÐILEGRA PÁSKA OG HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR ÖLL DANSANDI GLÖÐ ÞANN 2.APRÍL

Skólinn er í páskafríi 25.mars-1.apríl.

Örfái hópar eru með aukaæfingar í pásKafríinu, allar upplýsingar koma inná Sportabler.

Listdansbraut JSB er í frí 28.mars-1.apríl

Dansbikarinn

Danbikarinn fór fram síðastliðin föstudag 8.mars. Alls voru 8 atriði skráð til keppni. Og fullt hús af áhorfendum.

Við óskum öllum keppendum og sigurvegurum innilega til hamingju með frábæra frammsistöðu.

Allir keppendur stóðu sig stórkostlega vel og fengu að launum verðlaunapening og viðurkenningarskjal. Stigahæsta atriðið í hverjum flokki fékk farandbikar JSB, sigurvegarar fá nafnið sitt áletrað á bikarinn svo fer hann upp í hillu og er til sýnis þar þangað til að næsti sigurvegari tekur á móti honum. Hlökkum til að endurtaka leikinn á næsta ári.

Sigurvegarar Dansbikarins 2024:

  • Sóló 10-12 ára– Lilja María Guðlaugsdóttir
  • Dúett 10-12 ára– Lillý Guðrún Breiðfjörð og Unnur H. Óskarsdóttir
  • Dúett 13-15 ára– Edil Mari Campos Tulagan og Hildur Gunnarsdóttir

Dansbikarinn er innanhús danskeppni JSB sem 3.árs nemar af listdansbraut JSB sjá um. Keppnin er partur af útskriftaráfanga í uppsetningu á sýningu og sviðsframkomu.

Inntökupróf á listdansbraut JSB

Inntökupróf á grunnstig og framhaldsstig listdansbrautar fyrir skólaárið 2024/2025

Framhaldsstig listdansbrautar. Inntökupróf þriðjudaginn 30.apríl kl.18:30. Umsækjendur eru beðnir að koma með ballettfatnað og jazz/nútímadans fatnað til skiptanna. Nánar má kynna sér brautin HÉR

Grunnstig listdanbrautar. Inntökupróf laugardaginn 11.maí árgangar 2009-2012, tímasetnning kynnt síðar. Nánar má kynna sér grunnstigið HÉR

Skólanámsskrá JSB

Opnað verður fyrir skráningu á Sportabler 1.apríl. Og fara inntökuprófin fram í húsakynnum JSB í Lágmúla 9.

SKRÁNING HÉR

Öllum fyrirspurnum um námið og inntökuprófið svarar Þórdís á netfanginu thordis@jsb.is

Hópa niðurröðun á sýningardaga.

Nemendasýning JSB 2024

Hér að neðan má finna niðurröðun hópa á sýningardaga.

Mánudagur 22. apríl – kl. 17:00 & 19:00

  • 5. stig
  • B1
  • C2
  • D3
  • E1
  • F1
  • G3       aðeins kl. 19:00
  • H1       aðeins kl. 17:00

Þriðjudagur 23. apríl – kl. 17:00 & 19:00

  • 4. stig
  • C1
  • D1
  • D2
  • E2
  • G1       aðeins k. 19:00
  • G2       aðeins kl. 17:00
  • I1         aðeins kl. 17:00

Mánudagur 22. apríl & þriðjudagur 23. apríl  – kl. 17:00 & 19:00

  • 6. stig
  • 7. stig
  • 1. ár
  • 2. ár
  • 3. ár

Nemendasýning JSB 2024

💚 Í FYRSTU VAR EKKERT 💚

Nemendur og kennarar Danslistarskóla JSB setja á svið frumsamda sýningu byggða á sögum og kenningum um upphaf alls lífs.
“Í FYRSTU VAR EKKERT” fer með áhorfandann í ferðalag alla leið aftur til upphafsins, leiðir okkur í gegnum forna tíma og áfram til dagsins í dag. Að lokum veltum við því fyrir okkur hvað framtíðin muni bera í skauti sér…

**
Nemendasýningar JSB 2024 fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 22. og 23. apríl

Hrekkjavökudagar

Dagana 28.-31.október verða hræðilegir hrekkjavökudagar í JSB. Við hvetjum alla nemendur til að mæta í búning. Kennarar munu undirbúa draugalega danstíma í anda hrekkjavökunar.